Auður sendir Líf sneið: Segir hana misnota loftslagsmál sem afsökun fyrir öðru

Auður Ingólfsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni og samfélagsábyrgð, segir óþolandi þegar borgarfulltrúar í Reykjavík misnoti loftslagsmál sem afsökun fyrir öðru. Með því sneiðir Auður að Líf Magneudóttur, borgarfulltrúa VG í Reykjavík, sem hefur látið hafa eftir sér að það yrði mik­il aft­ur­för í bar­átt­unni við lofts­lags­breyt­ing­ar, ef borgin fær ekki bygg­ing­ar­land þar sem Reykjavíkurflugvöllur stendur nú.

„Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig það sé allt í einu orðin einhver lykilaðgerð í loftslagsaðgerðum að færa flugvöllinn og byggja upp í Vatnsmýrinni?“ Spyr Auður í færslu á facebook.

Hún segist gera sér grein fyrir að þétting byggðar geti verið gagnleg í þessu samhengi, m.a. með minni notkun einkabílsins, en væntanlega feli tilfærsla flugvallarins út fyrir borgarmörkin meiri losun í sér á móti vegna samgangna þar sem innanlands farþegar þurfi þá að hafa meira fyrir því að koma sér inn í borgina?

„Ég flýg a.m.k. oft til Reykjavíkur og labba svo bara í HÍ eða í bæinn á þá fundi sem ég þarf að fara,“ segir Auður.

„Það sem fer í taugarnar í mér við þessa orðræðu er að þarna er verið að misnota það að flestir eru nú loksins orðnir sammála um að við þurfum að leggja áherslu á loftslagsmál og nota það sem "afsökun" fyrir afstöðu í einhverju málefni þar sem er nokkuð ljóst að það eru aðrir hagsmunir sem liggja að baki. Á meðan engin greining liggur að baki um með hvaða hætti það sé "...afturför í baráttu við loftslagsbreytingar" ef Reykjavík fær ekki þetta land fyrir sig þá er þetta frekar aum röksemdarfærsla,“ segir Auður.