„Vek athygli á þessu. Ef þið veljið ykkur ekki sjálf raforkusala er fyrirtæki valið fyrir ykkur og þið greiðið hærra verð en þið þyrftuð!“
Þetta segir Auður Alfa Ólafsdóttir, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ, í Facebook-hópnum Vertu á verði – eftirlit með verðlagi.
Þar deilir hún frétt Stundarinnar um raforkusölukerfið á Íslandi en bent er á það í fréttinni að orkufyrirtækið Íslensk orkumiðlun/N1 rafmagn hafi sett nýja viðskiptavini sína á annan og hærri verðtaxta en fyrirtækið hefði átt að gera samkvæmt hugmyndafræðinni í nýlegum lögum og reglugerð um smásölu á rafmagni.
„N1 fær þessa viðskiptavini til sín vegna þess að þeir bjóða upp á lægsta verðið en þeir viðskiptavinir sem færast sjálfkrafa til þeirra fá síðan ekki þetta lága verð heldur borga hærra verð,“ segir Auður Alfa í færslu sinni og hvetur fólk til að athuga þessi mál hjá sér. Bendir hún á að einfalt sé að skipta um orkusala og það taki aðeins tvær mínútur – eitthvað sem getur skilað ágætu tímakaupi. Deilir hún tengli á vef Aurbjargar þar sem finna má verðsamanburð á raforkusölum.
Færsla Auðar hefur vakið talsverða athygli og segir til dæmis í einni athugasemd: „Ég var fljót að skipta þegar ég sá þetta.“