Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur undir listamannsnafninu Auður, verður ekki í uppsetningu Þjóðleikhússins á leikverkinu Rómeó og Júlía næsta vetur.
Þetta staðfestir Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóri í samtali við Vísi.
Ásakanir hafa komið fram gegn Auðunni undanfarnar vikur og var greint frá því í gær að þær hefðu náð inn á borð Þjóðleikhússins. Nú liggur sem sagt fyrir að Auðunn verður ekki í uppsetningunni en hann átti að semja tónlistina fyrir verkið.
Þá greindi tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens frá því í gærkvöldi að Auðunn myndi ekki koma fram á tónleikum hans þann 16. júní eins og til stóð. Auðunn sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi þar sem hann baðst afsökunar á að hafa farið yfir mörk konu árið 2019 og kvaðst hann hafa reynt að axla ábyrgð.