Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, einnig þekktur undir listamannsnafninu Auður, sendir móður sinni Ingibjörgu Ragnarsdóttur fallega kveðju í tilefni af 60 ára afmæli hennar.
Auðunn skrifar færslu á Facebook-síðu sína þar sem hann bendir á að hún hafi unnið í yfir áratug á fyrirburadeild Landspítalans og í ungbarnaeftirliti.
„Hún vann langar næturvaktir við þá vinnu sem jafnvel á tímum heimsfaraldurs er bæði mest vanmetin og mikilvægust samfélaginu í heild. Þess á milli skutlaði hún mér í gítartíma og Hrafnhildi á sundæfingar. Hún kenndi mér að lesa, lagaði alltaf samlokur þegar vinir komu í heimsókn og hún gaf mér allt sem ég á,“ segir Auðunn.
Hann bætir við að foreldrar hans hafi orðið ástfangnir í Flensborg eftir að hafa leikið saman í skólaleikritinu og þau staðið saman allar götur síðan.
Auðunn rifjar svo upp að síðasta sumar hafi hann hitt prest í Eystra-Geldingaholti sem sagði honum að hann hefði í raun einu sinni verið móðir sín.
„Ég var hluti af líkama hennar og ég yrði fyrst ég sjálfur þegar það væri klippt á naflastrenginn. En síðan fengi ég frá henni brjóstamjólkina, inní mér væri DNA-ið hennar og hún kenndi mér að tala og mótaði þann mann ég hefði að geyma. Þannig væri ég bæði ég sjálfur og hún um ókomna tíð,“ segir Auðunn sem sendir móður sinni falleg lokaorð.
„Í dag er Ingibjörg Ragnarsdóttir móðir mín 60 ára. Hún hefur tileinkað líf sitt börnum og ég er svo stoltur að vera sonur hennar. Takk fyrir allt mamma.“