„Auðunn Blöndal loksins að meika það“

„Auðunn Blöndal loksins að meika það. Stórkostlegur þáttur Í kvöld. Bubbi engum líkur. Frábært sjónvarp.Eina.“

Þetta segir íþróttafréttamaðurinn góðkunni Guðjón Guðmundsson á Twitter-síðu sinni. Í gærkvöldi var fyrsti þátturinn af Tónlistarmönnunum okkar sýndur á Stöð 2 og var Bubbi Morthens gestur Auðuns, eða Audda Blö eins og hann er stundum kallaður.

Í þessari þáttaröð mun Auddi meðal annars hitta Helga Björns, Erp Eyvindarson, Röggu Gísla, Daníel Ágúst og Birgittu Haukdal en í þáttunum tekur Auddi hús á þessum tónlistarmönnum og fær að kynnast þeim betur. Óhætt er að segja að þátturinn í gær hafi fallið vel í kramið eins og sjá má hér að neðan: