Margir minnast nú flugmannsins Haraldar Diego sem lést í flugslysinu hræðilega í Þingvallavatni. Meðal þeirra sem minnast Haraldar er Auðun Georg Ólafsson, fréttastjóri K100, sem rifjar upp samskipti þeirra þegar Auðun sé um Kópavogsblaðið:
„Þú gaukaðir að mér mynd af Kópavogi í kvöldsólinni þegar þú varst að koma til lendingar og spurðir hvort þetta væri ekki forsíðumynd í Kópavogsblaðið. Svo var endalaust hlegið og djókað, gaman að heyra í þér aftur,“ sagði Auðun.
„Það er svo ótrúlega sárt að vita til þess að þú sért farinn en ert samt einhvernveginn svo nálægt. Nærvera þín og gleði var svo einlæg og tær og mun aldrei gleymast.“
Auðun fór yfir samskipti þeirra af Facebook, sá hann hversu smitandi húmorinn og léttleikinn var: „Í tölvunni á ég myndskeið af þér úr gamalli ræðukeppni þar sem þú skelltir þér í púltið eftir keppnina og sagðir klúra brandara. Hver gerir svoleiðis fyrir framan fullum sal af jafnöldrum sínum á menntaskólaárunum? Ferlega fyndinn, glettnin í augunum leyndi sér aldrei. Við eigum eftir að sakna þín mjög mikið. Minningin um góðan dreng mun alltaf lifa. Hvíl í friði kæri Haddi.“