Nágrannar auðmannsins Magnúsar Ármann eru afar ósáttir við framkvæmdir sem staðið hafa yfir við einbýlishús hans við Frjóakur 9. Telja þeir að Magnús og eiginkona hans hafi farið í ólöglegar framkvæmdir og krefjast nágrannarnir þess að Garðabær viðurkenni bótaskyldu vegna málsins.
Fréttablaðið fjallaði um þetta í dag.
Magnús Ármann og eiginkona hans, Margrét Íris Baldursdóttir, keyptu húsið í byrjun árs á 360 milljónir króna. Þau réðust fljótlega í framkvæmdir og létu útbúa fullkomna líkamsræktaraðstöðu í kjallaranum þar sem útgengt er út í garð.
Nágrannar hjónanna telja að um brot á deiliskipulagi sé að ræða enda fékkst undanþága til að stækka kjallarann á sínum tíma gegn því að um gluggalaust rými yrði að ræða. Þá segir í frétt Fréttablaðsins að steinsteypt sána hefði verið reist við lóðarmörkin en nágrannar telja að ekki hafi verið heimild til þess og vilja að hún verði fjarlægð.
Þá segir í bréfi sem nágrannarnir sendu bænum að sáttavilji hjónanna hafi verið enginn og loks er byggingarfulltrúi Garðabæjar gagnrýndur fyrir að aðhafast ekkert í málinu þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þess efnis. Að því er segir í frétt Fréttablaðsins var bréfið tekið fyrir á fundi bæjarráðs í vikunni og kom þar fram að framkvæmdir hefðu verið stöðvaðar.
Íbúar vilja að eignin verði færð til rétts horfs í samræmi við lög og reglur.