ÁTVR hefur hafið undirbúning að beiðni um lögbann á hendur vefverslunum sem selja áfengi í smásölu hér á landi beint til neytenda. Samhliða því er einnig hafinn undirbúningur lögreglukæru vegna starfseminnar.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem ÁTVR hefur sent frá sér. Bent er á að vefverslanir sem selja áfengi til neytenda hafa sprottið upp að undanförnu og starfseminni sé beint gegn lögbundnum einkarétti Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis, sem hefur verið ein grunnstoða íslenskrar áfengisstefnu. Ekki er talað um tilteknar netverslanir í tilkynningu ÁTVR en að undanförnu hefur verið fjallað um vefverslun Santewines SAS, sem Arnar Sigurðsson er í forsvari fyrir, en fyrirtækið er með vörulager hér á landi og því geta íslenskir viðskiptavinir fengið vörurnar afhentar samdægurs.
„Þrátt fyrir afdráttarlaus ákvæði áfengislaga og laga um verslun ríkisins með áfengi og tóbak um einkaleyfi ÁTVR til þess að selja og afhenda áfengi í smásölu fullyrða rekstraraðilar vefverslananna að starfsemi þeirra sé lögleg. Óhjákvæmilegt er að fá úr því skorið hjá til þess bærum aðilum. ÁTVR hefur því hafið undirbúning að beiðni um lögbann á hendur vefverslununum og höfðun dómsmáls í framhaldi af því. Samhliða er hafinn undirbúningur lögreglukæru vegna starfseminnar.“
Í tilkynningunni kemur fram að einkaréttur ríkisins til smásölu áfengis byggi á lýðheilsusjónarmiðum og því mati löggjafans að markmiðum um heilsu þjóðarinnar verði ekki náð með öðru og vægara móti.
„Verði starfsemi vefverslana í beinni samkeppni við smásölu ÁTVR látin óáreitt felur það í sér grundvallarbreytingu á áfengisstefnunni og forsendum fyrir rekstri fyrirtækisins.“
Arnar Sigurðsson, vínkaupmaður hjá Santewines SAS, er einn þeirra sem hefur hleypt af stokkunum vefverslun með áfengi og telur hann að um fyllilega lögmæta starfsemi sé að ræða. Santewines SAS er franskt fyrirtæki og er vörulager fyrirtækisins hér á landi, það er fyrir íslenska viðskiptavini. „Íslendingar hafa lengi haft heimild til þess að kaupa áfengi í gegnum erlendar netverslanir en það er fyrst núna sem vörurnar fást afhentar samdægurs,“ sagði Arnar við mbl.is á dögunum.