Átján þúsund fyrirtæki eru í daglegum rekstri og mörg þeirra eru í gjörgæslu vegna kórónaveirunnar. Fyrirtæki bíða núna aðallega eftir sérlánum sem ríkisstjórnin hefur kynnt sem viðspyrnu við kreppunni.
Biðstaða einkennir atvinnulífið
„Það er ekki ennþá komin reglugerð um það hvernig á að meta skilyrði fyrir slíkum lántökum og það er auðvitað mikilvægt að þar sé vandað verulega vel til verks, ég get ekki betur séð en að það séu allir að vanda sig og allir að hlaupa hratt. Ég veit að það er fundað dag og nótt, bæði hjá ríkinu og bönkunum“, segir Brynja Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo í viðtali í þætttinum 21 á Hringbraut í kvöld um heilsufar íslenskra fyrirtækja. Hún ræðir líka úrræði í öðrum löndum líkt og Bandaríkjunum og Bretlandi sem hafi verið illa úr garði gerð, Bandaríkin hafi dælt peningum algerlega ómarkvisst til fyrirtækja og í Bretlandi hafi skilyrði fyrir fjárhagslegri aðstoð verði of ströng til að fyrirtæki sem þurftu gætu nýtt þau.
Brynja bendir á að úrræði ríkisstjórnarinnar á Íslandi gagnist fyrirtækjum misjafnlega eftir stærð þeirra og gerð. Ríkið hafi kynnt tvö úrræði sem hafa bein áhrif á fjárhag fyrirtækja; brúarlánin sem eigi frekar við stærri fyrirtæki og svo stuðningslánin sem eru að hámarki 6 milljónir króna og með einungis 1,75 prósent vöxtum og hundrað prósent ríkisábyrgð.
Hún segir einnig að bankarnir þurfi að vita hvaða kostnaður lendi á þeim og hvað hjá ríkinu, slíkt hafi ekki enn komið fram.
Fyrirtækin gerðu allt rétt
Vandinn núna í þessari kreppu er tekjufall á meðan árið 2008 var glíman við skuldavanda. „Nú erum við bara að tala um fyrirtæki sem gerðu allt rétt, voru að gera allt rétt í sínum rekstri en það varð hrun í tekjum og eftirspurn og þá er bara erfitt fyrir fyrirtæki að eiga fyrir næstu launagreiðslu“, segir Brynja.
Heilsufar íslenskra fyrirtækja er bágara en það hefur verið í mörg ár. 940 félög hafa verið lýst gjaldþrota undanfarna 12 mánuði sem er það mesta á sama tímabili í sjö ár. Frétt um þetta er á vb.is í dag þar sem vitnað er í nýjar tölur hagstofunnar. Tímibilið sem um ræðir er frá apríl 2019 til mars 2020.