Atvinnulífið í kvöld kl. 20.00 - Steinullarverkssmiðjan á Sauðárkróki

Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld en þá heimsækir þáttastjórnandinn Sigurður K. Kolbeinsson

fyrirtækið Steinull hf. á Sauðárkróki. Verksmiðjan tók til starfa árið 1985 og er eini framleiðandi steinullar hér á landi en

steinull er notuð sem einangrunarefni við húsbyggingar og hefur dugað vel hér á landi þau ár sem þetta efni hefur verið

notað. Steinull er unnin úr sérstakri hráefnisblöndu sem samanstendur af nokkrum sandtegunum sem flestar eru í fjöruborði

Skagafjarðar þaðan sem þær eru fluttar inn í verksmiðjuhúsið þar sem efnahvörf eiga sér stað og úr verður steinull.

Ferlið er sýnt og því lýst á mjög myndrænan hátt eins og vani er í Atvinnulífinu. Rætt er við Stefán Loga Haraldsson framkvæmdastjóra

Steinullar ásamt öðrum stjórnendum fyrirtækisins. Kvikmyndataka var í höndum Friðþjófs Helgasonar.