Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld og er að vanda í umsjón Sigurðar K. Kolbeinsson.
Í þessum þætti kynnumst við sorphirðu, sorpflokkun og ýmsu er lýtur að umhverfismálum Íslendinga.
Sorphirða og einkum sorpflokkun er orðið brýnt mál á hverju heimili landsmanna sem og hjá öllum fyrirtækjum.
Við fáum að vita hvar og hvenær flokkunarkerfið hófst og eins að kynnast því hversu stór útflutningsafurð sorp frá
heimilum og fyrirtækjum landsins er orðin. Í hvað er það notað erlendis og hvar liggja verðmætin þarna á bak við?
Einnig verður fjallað um svokallaða moltugerð og lífdiesel sem er afurð sem fellur til af matarolíu vetingahúsa
á höfuðborgarsvæðinu. Þá verða sýndar teikningar af nýjum höfuðstöðvum við Koparsléttu á Esjumelum en fyrirtækið
flytur starfsemina alfarið þangað fyrir mitt næsta ár. Þetta ásamt mörgu öðru verður tekið fyrir í viðtali við forstjóra Íslenska gámafélagsins,
Jón Þóri Frantsson, ásamt helstu stjórnendum fyrirtækisins. Myndatakan var í höndum Friðþjófs Helgasonar.