Þátturinn Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld. Í þættinum verður fjallað um sögu og fyrrum starfsemi Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur sem tók upphaflega til starfa árið 1953. Mikil saga er þarna að baki en var starfsemin umfangmikil á sínum tíma en þar fór fram mæðra- og ungbarnaeftirlit fram ásamt annarri heilbrigðistengdri starfsemi. Húsið stendur autt eins og er en Embætti Landlæknis flutti þaðan fyrir 3 árum. Ýmislegt bendir til þess að starfsemi hefjist í húsinu að nýju áður en langt um líður og þar er m.a. horft til málefna barna. Í þættinu verður rætt við nokkra fyrrverandi sérfræðinga og starfsmenn hússins ásamt forstjóra Barnaverndarstofu og framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi.
Þá verður einnig rætt við sviðsstjóra Minjastofnunar en Heilsuverndarstöð Reykjavíkur nýtur friðunar frá Húsfriðinarnefnd. Þáttastjórnandi er Sigurður K. Kolbeinsson og myndatökur annaðist Friðþjófur Helgason.