Birgir Örn Steinarsson, einnig þekktur sem Biggi í Maus, opnaði sig í athyglisverðu viðtali í þættinum Okkar á milli á RÚV síðastliðinn fimmtudag.
Birgi þekkja margir tónlistarunnendur en færri vita að hann starfar í dag að hluta til sem sálfræðingur hjá Pieta-samtökunum – samtökum sem sinna forvarnarstörfum gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja þar að auki við aðstandendur.
Í viðtalinu var farið um víðan völl og sagði Birgir meðal annars að ein ástæða þess að hann vildi vinna með Pieta-samtökunum – og ein af ástæðum þess að hann fór að læra sálfræði – hafi verið sú að vinur hans svipti sig lífi árið 2003.
„Ég var mikið að spá hvað ég hefði átt að gera, hvort ég hefði geta gert eitthvað öðruvísi og vildi fá svör við því hvernig maður bregst við því ef einhver er í sjálfsvígshættu.“
Fráfall vinarins hafði mikil áhrif á Birgi og urðu ákveðin vatnaskil í lífi hans þegar hann í raun „krassaði“. Hann flutti til London þar sem hann bjó í tvö ár.
„Ég tapaði vinum og kærustu og húsnæði og alls konar. Þurfti aðeins að skoða sjálfan mig,“ segir hann meðal annars. Hann fór í ákveðna sjálfsvinnu sem reyndist honum vel og sú vinna hafi hjálpað honum í störfum sínum sem sálfræðingur.