Formenn Samfylkingarinnar og Flokks fólksins gagnrýna harðlega þau mistök sem voru gerð við talningu í Norðvesturkjördæmi en við endurtalningu í kjördæminu í sunnudag duttu fimm þingmenn út og komu aðrir fimm þingmenn inn þar sem atkvæði höfðu verið vitlaust talin.
„Þetta er náttúrulega sögulegt, það er nokkuð ljóst, og mér finnst þetta bara stórfurðulegt ef ég á að segja alveg eins og er,“ sagði Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í viðtali í kvöldfréttum RÚV í kvöld.
„Ég bara átta mig engan veginn á því hvernig er hægt að klúðra málum svona algerlega í sambandi við talninguna, og mér finnst mér finnst það svolítið mikill áfellisdómur ef ég á að segja alveg eins og er,“ sagði Inga Sæland.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, ræddi einnig við RÚV en hann sagði málið vera vont á marga vegu.
„Í fyrsta lagi er náttúrlega grundvallaratriði að fólk geti treyst lýðræðislegum kosningum, það er hornsteinn okkar, þannig það er mjög brýnt að taka á þessu og passa að þetta gerist ekki aftur. Svo er þetta auðvitað að setja náttúrulega fjölda manns í mjög óþægilega stöðu sem er óboðlegt,“ sagði Logi.
Karl Gauti Hjaltason, frambjóðandi Miðflokksins, var einn þeirra sem datt út við hringekjuna en hann hefur lagt fram kæru til lögreglu þar sem hann telur að um brot á kosningalögum hafi verið þar sem kjörgögn voru ekki innsigluð.
Þá hafi verið auðvelt fyrir aðra að komast inn í salinn þar sem gögnin voru geymd. Þessu hefur formaður yfirkjörstjórnar í kjördæminu neitað alfarið og vísað til þess að upptökur sýni hvort einhver hafi farið þar inn.
Landskjörstjórn fundaði í dag þar sem farið var yfir skýrslur frá yfirkjörstjórnum í hverju kjördæmi fyrir sig en þar kom fram að ekki hafi fengist staðfesting á því að meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi hafi verið fullnægjandi. Það sé því Alþingis að úrskurða um gildi kosninganna.