Átta lagðir inn með CO­VID-19 í gær­kvöldi – Fólk haldi sig heima um helgina

Átta ein­staklingar voru lagðir inn á Land­spítalann í gær­kvöldi með CO­VID-19. Alls liggja 78 á sjúkra­húsi vegna veirunnar og þar af eru fjórir á gjör­gæslu.

Yfir­völd hafa hvatt lands­menn til að halda sig heima um helgina og sagði Víðir Reynis­son yfir­lög­reglu­þjónn í há­degis­fréttum RÚV að það væri til að draga úr líkum á slysum. Mikið álag væri á Land­spítalanum.

„Það komu átta ný til­felli þar í gær­kvöldi á einu bretti víðs vegar að. Þannig að það var erfitt. Og það er búinn að vera erfiður dagur í dag á Land­spítalanum,“ sagði Víðir.

Þó að smitum hafi farið fækkandi hefur á­lagið á Land­spítalann ekki farið minnkandi. Nokkuð margir dagar geta liðið þar til al­var­leg ein­kenni CO­VID-19 fara að gera vart við sig. Þannig greindust 56 smit á föstu­dag fyrir viku og 75 á fimmtu­deginum í síðustu viku. Að­eins ní­tján smit greindust hins vegar í gær og standa vonir til þess að á­lagið á Land­spítalann minnki næst sam­hliða fækkandi smitum.

„Við sjáum það að það er á niður­leið og það er já­kvætt. Það er alveg ljóst að sam­fé­lags­legi svona mátturinn er greini­lega að skila sér í því að við erum að fara að byrja að sjá árangur af því sem allir á­kváðu að taka þátt í,“ sagði Víðir í fréttum RÚV.