Átta ára drengur lagði Guðna for­seta: „Varið ykkur á þessum í fram­tíðinni“

Guðni Th Jóhannes­son, for­seti Ís­lands, tapaði fyrir Hauki, átta á dreng, í skák­ein­vígi á Fisher Random skák­mótinu sem stendur nú yfir í Reykja­vík. Drengurinn sem heitir Haukur

For­setinn er á­huga­maður um skák og hefur oft tekið þátt í við­burðum í tengslum við skák­í­þróttina.

Í mynd­brotinu sem sjá má hér fyrir neðan heyrist að norska ríkis­sjón­varpið sýndi á­huga á að ræða við Guðna á meðan hann tefldi við Hauk.

Í færslunni talar Guðni um að Haukur sé efni­legur skák­maður og að það yrði gaman að fylgjast með fram­tíð hans í skák­í­þróttinni. „Varið ykkur á þessum,“ skrifar Guðni en bætir við að það mikil­vægasta væri að njóta leiksins.