Atli Þór: Þeim er alveg sama um þig ef þú þénar minna en 1,3 milljónir á mánuði

„Katrínu og Bjarna er ekki bara sama um þig. Þau eru í stríði gegn þér og öllum í kringum þig sem þéna minna en 1,3 milljónir á mánuði,“ segir Atli Þór Fann­dal, fyrr­verandi blaða­maður og upp­lýsinga­full­trúi hjá Space Iceland, Geim­vísinda- og tækni­skrif­stofunni.

Atli, sem er einnig fyrr­verandi ráð­gjafi Pírata, deilir á Face­book færslu Eflingar þar sem vakin er at­hygli á því að yfir­völd ætli nú að leggja til hundrað­falda sekt á ó­greiddar strætó­ferðir. Á sama tíma sefur frum­varp um sekt við launa­þjófnaði í nefnd og bendir Efling á að á­stæðan sé sú að Sam­tök at­vinnu­lífsins vilji ekki hafa sektina of háa.

„Skóla­krakkar og lág­tekju­fólk eiga á hættu að fá 45.000 kr. sekt á leið í vinnu og skóla á meðan mold­ríkir at­vinnu­rek­endur eru látnir ó­á­reittir þegar þeir stela hundruðum þúsunda af starfs­fólki. Hver hefur eyru ríkis­stjórnarinnar og hver ekki? Það kostar ríkið ekkert að gera launa­þjófnað refsi­verðan – en það kostar launa­fólk hundruð milljóna á ári að hann fái að við­gangast. Stoppum hann strax,“ segir í á­kalli Eflingar.

Atli Þór, sem liggur sjaldnast á skoðunum sínum, segir að auð­vitað sé ekkert að því að sekta fyrir brot.

„En alveg er það mögnuð til­viljun að móral­ismi og harka á alltaf við um lág- og milli­tekju­fólk en aldrei um vini þeirra Bjarna og Katrínar. Eitt gott við þetta kjör­tíma­bil er að VG getur ekki neitað því lengur að þau eru flokkur snobbara. Þeim finnst það ein­fald­lega sið­ferðis­lega rétt og raunar dyggð að moka undir þá sem mest hafa en gera mála­miðlanir á baki eigin fólks,“ segir Atli sem segir að VG hafi af­sannað allar hug­myndir um að hægt sé að temja dýrið í Val­höll.

„Flokkurinn í tætlum, vinstrið tvístrað, at­vinnu­leysið í toppi, sam­drátturinn einn sá versti í Evrópu og engin að­gerð virkar. Allar skjóta fram­hjá.“

Katrínu og Bjarna er ekki bara sama um þig. Þau eru í stríði gegn þér og öllum í kringum þig sem þéna minna en 1.3...

Posted by Thor Fanndal on Fimmtudagur, 5. nóvember 2020