Atli Þór Fanndal hjá Geimvísinda- og tækniskrifstofunni minnist Bjarna Valdimar Tryggvasonar geimfara en hann lést 76 ára að aldri á dögunum.
Bjarni varð fyrsti og hingað til eini íslenski geimfarinn þegar hann varði tólf dögum í geimnum árið 1997.
„Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja. Ég votta fjölskyldu og vinum Bjarna samúð mína. Bjarni er einhver magnaðasti maður sem ég þekki. Við höfum misst mikið. Kannski sérstaklega vegna þess að við áttuðum okkur kannski ekki alltaf á því sem við áttum. Veit ekki hvað skal segja. Ég er bara ofsalega leiður á að hafa misst vin og stuðningsmann geimvísinda. Ég lít upp til Bjarna,“ skrifar Atli Þór á Facebook.
„Fann gagn í því að tala við hann. Fannst gott að geta tuðað í honum yfir áhugaleysi yfirvalda á nýtingu tækifæra í geimnum. Kunni að meta skammir(ráðleggingar) frá honum. Lagði til að við fengjum að nefna verðlaun i nafnið á honum en fékk ekki svar - þrátt fyrir að minna hann á að svara spurningunum. Já, ég er bara ofsalega leiður. Miklu meira en ég hefði haldið. Skrifa eitthvað af meira viti síðar,“ skrifaði Atli enn fremur.