Leikarinn Atli Óskar Fjalarsson rifjar upp frétt á Facebook síðu sinni frá því þann 2. desember síðastliðinn þar sem Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, segist telja það raunhæfan möguleika að allir Íslendingar verði bólusettir í janúar.
Þær staðhæfingar hafa augljóslega ekki ræst en fram kemur á upplýsingavef almannavarna að einungis 4820 manns hafa lokið bólusetningu nú í upphafi febrúar. Ljóst er að það er nákvæmlega það sem Atli vill vekja athygli á, en hann lætur trúðabroskalla fylgja færslunni.
Í frétt Stöðvar 2 sem Atli deilir, segist Rúna auk þess búast við bólusetningu fyrir alla þjóðina í einu lagi. Það hefur augljóslega ekki komið á daginn. „Þetta er vandmeðfarið, sérstaklega Pfizer-bóluefnið,“ sagði Rúna. „Þetta er nú ekki stór markaður á Íslandi og það er gert ráð fyrir að þau komi í einu lagi. Það einfaldar í rauninni margt og sérstaklega þegar flutningur er með þessum hætti.“
Atli spyr því næst í færslunni sinni, að neðan: „Myndi svona stjarnfræðileg vanhæfni ekki krefjast afsagnar?“ Hörður Sigurðarson nokkur tekur undir með Atla að ummælin séu ekkert sérstaklega traustvekjandi nú. Hann segir spurning hver hafi lofað upp í ermina á sér og hver lét blekkjast og endurtekið fabúleringarnar.
Þá svarar Atli: „Lok nóvember og byrjun des var algjör fjölmiðlasirkus þar sem ráðamenn og annað embættisfólk tróðst yfir hvort annað með loforð um grænna gras hinu megin við áramótin. Flest af því var gjörsamlega innistæðulaust og það versta var helber lygi.“
🤡🤡🤡
Posted by Atli Óskar Fjalarsson on Monday, 1 February 2021