Atli greinir frá undar­legri kaup­hug­mynd föður síns: „A) við erum ekki með bíl undir það. B) við tveir gætum ekki lyft því“

Plötu­snúðurinn Atli Viðar Þor­steins­son, betur þekktur sem Atli Kanill. greinir frá afar skemmti­legu smáskilaboðum sem Þor­steinn faðir hans sendi honum. Þorsteinn segir þar að hann hefur á­kveðið að fjár­festa í orgeli og biður hann Atla um að sækja það með sér.

„ Ég talaði hann af þessu. A) við erum ekki með bíl undir það. B) við tveir gætum ekki lyft því saman. C) Það er ekki pláss hjá honum. D) Hann myndi aldrei spila á það. E) Hann ætlaði fyrst með það heim, svo til konunnar sinnar viku síðar, án þess að bera það undir hana,“ skrifar Atli.

Hann bætir við að lokum að núna sér hann eftir því og hefði alveg viljað fá orgel á heimili,.