Atli Fannar Bjarkason, fjölmiðlamaður og verkefnastjóri vefútgáfu og samfélagsmiðla á RÚV, er yfirleitt með puttann á púlsinum og hefur færsla hans á Twitter um afmæli Róberts Wessman vakið talsverða athygli.
Mannlíf sagði frá frá því að Róbert hefði haldið upp á afmæli sitt í París um helgina ásamt sinni heittelskuðu, Kseniu Shakmanova. Með fréttinni birtist mynd af Róberti og Ksemiu þar sem þau kysstust í borg ástarinnar. Á myndinni virtist Róbert svo halda á rauðum Opal-poka en svo var þó alls ekki eins og Atli Fannar benti á.
„Hvernig er hægt að fjalla um þetta afmæli án þess að taka fram að þessi ópalpoki er kaka??“
Óvíst er hver bakaði þessa gullfallegu og mjög svo frumlegu köku sem eflaust hefur bragðast vel.
Hér að neðan má sjá færslu Atla Fannars og sönnun fyrir því að Opal-pokinn var svo sannarlega kaka.
hvernig er hægt að fjalla um þetta afmæli án þess að taka fram að þessi ópalpoki er kaka?? pic.twitter.com/2wXL6GaYRN
— Atli Fannar (@atlifannar) October 6, 2021