Atli Fannar hressir upp á stemmingu á RÚV á kostnað Júlíu: „Bárust fjöl­mörg brútal blaut prumpu­hljóð frá mér“

Fjöl­miðla­konan og rit­höfundurinn Júlía Margrét Einars­dóttir greinir frá heldur skondnu at­viki á skrif­stofu RÚV í dag er Atli Fannar Bjarka­son verk­efna­stjóri vef­út­gáfu hjá RÚV á­kvað að grínast í henni.

„Atli Fannar, sessu­nautur minn í vinnunni til margra ára og grínari, á­kvað að hressa upp á stemmarann á RÚV í dag með því að kveikja á prumpu­appi í símanum sínum og setja á fúll­blast, Stilla honum svo upp við stólinn minn og láta sem ekkert væri,“ skrifar Júlía

„Svo á meðan ég sat ein­beitt og horfði al­var­leg á tölvu­skjáinn að skrifa menningar­greinar með heyrnar­tól á mér, bárust fjöl­mörg brútal blaut prumpu­hljóð frá mér fyrir alla sem áttu leið hjá í góðar tuttugu mínútur lát­laust,“ bætir hún.

Hún segir að þetta efur á­byggi­lega vakið mikinn við­bjóð, jafn­vel óhug og á­hyggjur af meltingunni hjá sér á meðal sam­starfs­fólks áður en hún spyr: „Hvernig á ég að hefna mín?“

Atli Fannar svarar fyrir sig í at­huga­semd og segir þetta nú ekki alveg rétt hjá Júlíu.

„Ég vil taka fram að tón­hæð hljóðanna var afar lát­laus. Þá voru alls ekki öll prumpu­hljóðin blaut — þvert á móti, þá voru í mesta lagi 20 til 30 prósent hljóðanna blaut eða meðal­blaut. Og það gengu ekki margir fram­hjá í þessar rétt rúm­lega 20 mínútur sem þessi hljóð voru í gangi. Og svipurinn á þeim var meira í ætt við sam­úð en hrylling. Þannig að þetta var alls ekki eins slæmt og Júlía lýsir,“ skrifar Atli.