Atli Fannar: „Ég trúi þeim og vona að réttlætinu verði fullnægt“

„Hryllilegt að lesa frásagnir þessara kvenna í gærkvöldi og stór hluti viðbragðanna eru nýr lágpunktur. Ég trúi þeim og vona að réttlætinu verði fullnægt,“ segir Atli Fannar Bjarkason, verkefnastjóri vefútgáfu og samfélagsmiðla á RÚV, á Twitter-síðu sinni.

Margir hafa tjáð sig um mál fjölmiðlamannsins Sölva Tryggvasonar á Twitter eftir að greint var frá því að tvær konur hefðu kært hann til lögreglu vegna meints ofbeldis.

Önnur konan hefur kært Sölva fyrir líkamsárás en kveðst hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi í fyrrasumar. Fréttablaðið greindi frá málinu í gær og vísaði í yfirlýsingu frá lögmanni kvennanna, Kristrúnu Elsu Harðardóttur.

Margar konur hafa stigið fram á Twitter og greint frá ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir. Hér að neðan má sjá brot af umræðunni á Twitter og ljóst að um mikið tilfinningamál er að ræða hjá mörgum.