Átakanleg saga Steinunnar: „Það virðist enginn vilja hjálpa fólki eins og mér“

Steinunn Ingibjörg Jakobs­dóttir lýsir ömurlegri aðstöðu sinni í viðtali við Fréttablaðið í dag. Hún fékk heilablóðfall fyrir rúmum átján árum og er nú lömuð og notar hjólastól. Hvert sem hún fer kemur hún að lokuðum dyrum. „Ég fæ bara nei alls staðar,“ segir hún.

Það sem er hvað mest sláandi við frásögn Steinunnar er fjárskorturinn. Frá síðustu áramótum hefur hún ekki fengið greiddar húsaleigubætur og þegar hún hefur greitt alla sína reikninga á hún sextán þúsund krónur eftir. „Matur er bara orðinn munaðarvara hjá mér,“ segir hún.

Hún hefur búið í Mosfellsbæ um nokkurt skeið og segist hvergi annars staðar vilja búa. Þrátt fyrir það fær hún ekki þá hjálp sem hún þurfi frá bænum.

„Það virðist enginn vilja hjálpa fólki eins og mér. Nú er staðan bara þannig að ég mun missa íbúðina því ég get ekki borgað af henni. Það lifir enginn á sextán þúsund krónum á mánuði.“ segir Steinunn sem óttast að missa íbúðina.

Hægt er að lesa viðtalið við Steinunni í heild sinni á vef Fréttablaðsins.