Ástþór Magnússon, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og stofnandi Friðar 2000, hefur stefnt Arion banka fyrir meintan fjárdrátt. Ástþór sendi fjölmiðlum tilkynningu um málið í gærkvöldi en stefnan verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Það er félag sem Ástþór er í forsvari fyrir, Islandus Europe ehf., sem er stefnandi málsins og segir Ástþór að það varði 300 Bandaríkjadali sem áttu að sendast til einstaklings í Rússlandi þann 4. apríl 2022.
„Nær ári síðar hefur bankinn hvorki skilað greiðslunni til viðtakanda í Rússlandi né skilað peningum til sendanda á Íslandi.“
Ástþór segir í tilkynningunni að bankinn beri fyrir sig viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna og segist hvorki geta komið peningunum áfram né skilað þeim til baka, peningarnir séu fastir hjá viðskiptafélögum sínum, Bank of America.
„Peningana sendi Arionbanki til vesturs í stað austurs,“ segir Ástþór sem vísar svo í svar sem hann fékk frá starfsmanni Arion banka í apríl í fyrra. Þar kom fram að greiðslan væri örugglega stopp hjá regluvörslu Bank of America.
„Samkvæmt þessu fóru peningarnir aldrei út af reikningi Arionbanka sem virðast einfaldlega hafa dregið að sér þessa fjármuni sveltandi einstaklings í Rússlandi. Ekki aðeins fjárdráttur, einnig þátttaka í þjóðarmorði gegn rússneskum almenningi,“ segir Ástþór sem er augljóslega ósáttur.
Ástþór er þeirrar skoðunar að þvingunaraðgerðir Bandaríkjanna gagnvart Rússlandi vegna stríðsins í Úkraínu geti ekki haft þau áhrif að verktakagreiðslum til almennra borgara í Rússlandi sé ekki komið til skila. Afleiðingarnar kunni að verða þær að óbreyttir borgarar svelta eða verða fyrir miklu óhagræði vegna þess.
Ástþór er harðorður í tilkynningu sinni og segir að Arion banki hafi skilað greinargerð í málinu upp á fleiri blaðsíður af „froðu og útúrsnúningum“.
„Málið minnir á algeng netbankasvindl. Peningarnir voru teknir á fölskum forsendum út af netbanka Arionbanka, undir því yfirskini að senda greiðsluna til Rússlands. Bankinn vill síðan hvorki senda peningana þangað né skila þeim til banka. Hreint netsvindl og fjárdráttur,“ segir hann.