Ástþór Magnússon ætlar að stilla til friðar í Úkraínu: „Þið munuð gera heiminn að betri stað“

Ástþór Magnússon, fyrrum forsetaframbjóðandi, hefur sent bréf til Volodymir Zelensky, forseta Úkraínu, þar sem hann hvetur Úkraínumenn til að beita sér fyrir friði í landinu. Tilgangurinn er að stilla tið friðar á svæðinu en mikil spenna er nú minni Rússa og Bandaríkjamanna.

Bréfið er sent undir bréfhaus samtakanna Friður 2000 og er Zelensky tjáð að samtökin hafi fengið friðarverðlaun Leifs Eiríkssonar árið 2002.

Í bréfinu, sem Ástþór sendi Zelensky í gær og fjölmiðlum í dag, rifjar hann upp stríð Bandaríkjanna gegn hryðjuverkum sem Ástþór segir að hafi misheppnast með öllu.

„Þú ert á miklum krossgötum í lífi þínu Zelensky forseti. Mun arfleið þín vera sem miklum hugsjónarmanni sem leiddir inn nýja tíma velsældar í þínu landi og Evrópu?,“ spyr Ástþór og segir Zelensky hafa valdið í sínum höndum að stilla til friðar.

Ástþór setur fram nokkur skref fyrir Zelensky, í fyrsta lagi að gefa út yfirlýsingu um að Úkraína sé hlutlaust land. Í öðru lagi að semja við Rússa og Bandaríkjamenn um að hvorugur aðilinn ráðist á landið. Svo að biðja friðargæsluliða til að vakta landið. Þá að taka Sviss til viðmiðunar til að innleiða lýðræði og nota til þess hátækni, til dæmis með að nota hraðbanka sem kjörkassa.

„Við munum fylgjast með þér koma friði á í landinu og vonumst til að geta afhent þér friðarverðlaun Leifs Eiríkssonar fyrir að gera Úkraínu að hlutlausu og farsælu friðarlandi,“ segir Ástþór að lokum.