Ástþór Jón Ragnheiðarson, varaformaður ASÍ-UNG og félagi í Sósíalistaflokki Íslands, segir að mikið hefur verið fullyrt um laun hjá starfsmönnum stéttarfélaga í fjölmiðlum og almennri umræðu undanfarið.
„Slegið hefur verið fram ýmsum tölum og í sumum tilfellum haldið fram að starfsmenn stéttarfélaga séu jafnvel með rúmlega tvöföld lágmarkslaun og slagi jafnvel í laun upp 800-900 þúsund krónur,“ skrifar Ástþór
„Í því samhengi finnst mörgum hverjum ásættanlegt að lækka laun hjá starfsmönnum stéttarfélaga. Ekki veit ég til þess að það sé í anda kjarabaráttu að berjast fyrir lægri launum, en það sem verra er, er þegar að fólk kallar eftir aðgerðum sem þessum á röngum forsendum,“ bætir hann við.
„Í allri umræðu er best að halda sig við það sem er vitað. Það er best að halda sig við tölur, gögn og staðreyndir. Þar sem ég þekki til eru laun almennra starfsmanna stéttarfélaga í flestum tilfellum á bilinu 500-600 þúsund krónur. Ég get staðfest að dagvinnulaun starfsmanns Eflingar árið 2018, sem var nýbyrjaður í starfi voru 509.850kr. Þessi sami starfsmaður eftir 4 ára starfsreynslu var kominn upp í 577.850. Á móti má benda á að starfsmenn fái greidda yfirvinnu og aksturstyrk, en höfum það hugfast að það telur ekki þegar þú þarft að sækja rétt þinn,“ skrifar Ástþór og birti mynd af launaseðli frá Eflingu.
„Fæðingarorlofssjóði varðar t.a.m. ekkert um það hvað þú ert með í akstursstyrk. Kjarabót en á sama tíma kjaraskerðing. Og jafnvel þó allt þetta sé tekið saman, dagvinna, yfirvinna og akstursstyrkur, þá kemst það ekki einu sinni nálægt þeim upphæðum sem haldið er fram í umræðunni.“
„Eru þetta of há laun? Er 500-600 þúsund krónur á mánuði of há laun? Til þess að svara því langar mér að setja upp dæmi. Ef við skoðum reiknivél fyrir neysluviðmið á síðu stjórnarráðsins og gefum okkur forsendur vísitölufjölskyldu á höfuðborgarsvæðinu, tveir fullorðnir og 2 börn, 1 í leikskóla og annað í grunnskóla. Dæmigerð heildarútgjöld án húsnæðiskostnaðar fyrir þá fjölskyldu eru 493.776kr og grunnviðmið er 276.905kr.“
„Höldum þá áfram og tökum húsaleiguna inn í dæmið. Leiguverð fór fyrir löngu síðan út fyrir öll velsæmismörk og er í dag ekkert annað en okur. Leigusalar eru mismunandi eins og þeir eru margir og verðið eftir því. Í Þessum útreikning skulum við gefa okkur að leiguverðið séu 200 þúsund krónur. Þá stöndum við þar að heildarútgjöld með húsnæði fyrir vísitölufjölskylduna er á bilinu 476.905kr - 693.776kr.“