Áströlsk móðir telur sig hafa fundið ó­dýra töfra­lausn við skítugum bað­her­bergjum

Flestir kannast ef­laust við það að þurfa að þrífa bað­her­bergi á heimili sínu en skítur á það til að safnast milli flísa og reynist oft erfitt að þrífa. Margir eyða peningum í dýr hreinsi­efni og eyða miklum tíma í að skrúbba veggi og gólf.

Ein áströlsk móðir telur sig þó hafa fundið töfra­lausn við vanda­málinu sem er ekki að­eins ódýr heldur fljót­virk. Hún greindi frá málinu í Face­book hóp mæðra í Ástralíu en hennar töfra­lausn felst í því að blanda saman matar­sóda og vetnisper­oxíð (e. hydrogen per­oxi­de), sem fæst í flestum apó­tekum og er notað til sótt­hreinsunar.

Móðirin deildi fyrir og eftir myndum af baðherberginu sínu á Facebook.

„Mæður! Ég hef ráðið úr gátunni,“ skrifaði konan, sem er sjálf frá Mel­bour­ne, en hún sagðist ekki trúa eigin augum eftir að hún notaði blönduna á bað­her­berginu sínu.

Á myndum, sem breski miðillinn Daily Mail birtir, má sjá af­raksturinn en hún blandaði vörunum saman þar til blandan var orðin að hálf­gerðu kremi og skrúbbaði svæðið.

Að eigin sögn þurfti hún ekki einu sinni að láta blönduna liggja á svæðinu heldur sá hún árangur sam­stundis.

Athugið: Rétt er að taka fram að forðast skal að blanda saman bleiki­efni, eins og vetnisper­oxíð, við önnur efni en öruggt er að blanda vetnisper­oxíði saman við matar­sóda, að því er kemur fram í frétt Daily Mail. Mikilvægt er þó að fara varlega þegar farið er með slík efni og varast að anda inn gufum.