Ásthildur óttast að fólk á lágmarkslaunum sitji uppi með skuldirnar: „Það er aftur byrjað partí á Íslandi eins og 2007“

Ásthild­ur Lóa Þórs­dótt­ir, þingmaður Flokks fólksins, óttast að þeir fjárfestar sem fengu að kaupa í Íslandsbanka hafi tekið lán fyrir kaupunum og að láglaunafólk muni á endanum sitja uppi með skuldirnar. Hún tekur söluna á 22,5 prósent hlut í Íslandsbanka fyrir í grein í Morgunblaðinu í dag.

„Fjár­málaráðherra hef­ur upp­lýst að mark­miðið hafi ekki verið að fá hæsta verðið, held­ur selja rétt­um aðilum. Enn er ekki ljóst hverj­ir þeir eru og það er ekk­ert víst að fjár­málaráðherra fái að vita það frek­ar en við, því það er eins lík­legt að það verði bara nöfn á ein­hverj­um fjár­fest­inga­sjóðum sem hugs­an­lega heita group-eitt­hvað, án þess að nokk­urn tím­ann verði gefið upp hverj­ir standi raun­veru­lega á bak við þá,“

segir hún. Ásthildur segir mikið gruggugt við þetta:

„Einn þeirra keypti í gegn­um fé­lag sem er með nei­kvæða eig­in­fjár­stöðu upp á 135 millj­ón­ir. Ann­ar sér­val­inn snill­ing­ur rak einka­hluta­fé­lag sitt í þrot árið 2015 vegna skulda við um­rædd­an banka en þykir samt hæf­ur til stjórn­ar­setu í hon­um(!).“

Telur hún líklegt að einhverjir af þessum aðilum hafi fengið lán.

„Já það er aft­ur byrjað partí á Íslandi eins og 2007 og kannski ekki skrýtið að fjár­málaráðherra full­yrði ít­rekað að heim­il­in á Íslandi hafi aldrei haft það betra því þetta er skemmti­legt partí,“ segir hún.

„En á sama tíma ber­ast fregn­ir af því að ein­stætt for­eldri á lág­marks­laun­um sé tækni­lega gjaldþrota og þar vanti 83.000 í hverj­um mánuði upp á að það geti fram­fleytt sér og að hjá pari með tvö börn sé rekstr­ar­hall­inn tæp­ar 90.000 á mánuði.“

Hún segir að það komi ekki til greina að sauðsvartur almúginn sitji upp með timburmennina af partýinu: „Flokk­ur fólks­ins seg­ir NEI við því. Aldrei aft­ur!“