Stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í gær hefur vakið hörð viðbrögð, en stýrivextir hækkuðu um hundrað punkta og eru vextir nú komnir í 7,5 prósent. Stýrivextir hafa hækkað ört undanfarin misseri en tvö ár eru síðan þeir voru 0,75 prósent.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins og fyrrverandi formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, gagnrýnir ákvörðunina harðlega í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag og lætur peningastefnunefnd Seðlabankans heyra það.
Hún segir að Seðlabankinn sé búinn að sýna sitt rétta andlit og opinbera fyrir hverja hann vinnur.
„Hann er ekki að vinna fyrir almenning heldur þá sem eiga pening og vita jafnvel ekki aura sinna tal.“
Ásthildur Lóa segir í grein sinni að heimili okkar eigi að vera friðhelg. Aldrei eigi að ganga að þeim og svipta fólk þannig fótfestu og öryggi. „Einnig má spyrja af hverju alltaf megi rýra eigið fé sem bundið er í fasteign en ekki fé sem liggur inni á bankareikningi.“
Ásthildur Lóa segir áhugavert að skoða fulltrúa peningastefnunefndarinnar.
„Þegar peningastefnunefnd er skoðuð kemur í ljós að hún er ákaflega einsleit. Allir nefndarmenn hafa sterk tengsl við fjármálageirann og í henni er enginn fulltrúi neytenda. Einnig má færa fyrir því rök að fólk sem er með í kringum tvær milljónir í laun á mánuði sé ekki hæft til að dæma almenning í ánauð bankanna og til húsnæðisleysis. Þau eru öll á grænni grein og geta því talað fjálglega um „ásættanlegan fórnarkostnað“ eða að „auðvitað sé ekki hægt að bjarga öllum“.“
Ásthildur Lóa heldur áfram og lætur ríkisstjórnina einnig finna fyrir því.
„Stóra málið er hins vegar að ef þau væru ekki raunvaxtafíklar að missa sig í rétttrúnaðinum, þá þyrfti ekki að bjarga neinum. Það er ekki hægt að ýta fólki fyrir björg og láta svo eins og einhver annar hafi brugðist því. Meðan á öllu þessu stendur situr ríkisstjórnin á hliðarlínunni og borar í nefið. Hún nennir þessu eiginlega ekki, og endurtekur eins og óþekkur krakki, þvert gegn betri vitund, að „skuldastaða heimilanna hafi aldrei verið betri“. Ég hef megnustu skömm á þessu og lýsi fullri ábyrgð á hendur þessu fólki.“