„Þetta er ekkert annað en opinber glæpastarfsemi,“ segir Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, í grein sem birtist í Morgunblaðinu um helgina.
Þar ber hún saman annars vegar 25 ára 40 milljóna króna verðtryggt og óverðtryggt lán samkvæmt reiknivél Landsbankans. Ásthildur Lóa, sem er fyrrverandi formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, bendir á að aðgerðir Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar nú séu að ýta mörgum út í verðtryggð lán sem nú mega vera til 25 ára. Ber hún saman þessi tvö lánaform, óverðtryggt og verðtryggt, og kemst að þeirri niðurstöðu að verðtryggðu lánin séu ekkert annað en glæpastarfsemi.
„Greiðslubyrði óverðtryggðs láns á 7% vöxtum til 25 ára er 283.000 á mánuði og sú upphæð á að haldast óbreytt út lánstímann, þó vaxtabreytingar geti vissulega haft áhrif, bæði til hækkunar og lækkunar. Verðtryggða lánið er hins vegar á 2,3% vöxtum og fyrsta greiðslan af því er 177.000 krónur og það er þessi munur sem freistar margra, en eftir aðeins fimm ár er afborgun verðtryggða lánsins búin að ná afborgunum af því óverðtryggða og þá byrjar ballið fyrir alvöru,“ segir Ásthildur Lóa í grein sinni.
Hún heldur áfram og bendir á að eftir 10 ár sé afborgun verðtryggða lánsins komin upp í 450.000 og eftirstöðvar þess hafa hækkað um 28,6 milljónir á meðan eftirstöðvar óverðtryggða lánsins hafa lækkað um tæpar níu milljónir.
„Og eftir 15 ár er afborgun verðtryggða lánsins komin upp í 723.000 krónur. Til að standast greiðslumat fyrir svo háum afborgunum þarf fólk að hafa tvær milljónir á mánuði í laun. Þessi lán eiga að vera fyrir þau sem ekki standast greiðslumat fyrir óverðtryggðu láni og það er ólíklegt að lægstu laun eða örorkubætur verði 2 milljónir að 15 árum liðnum þegar afborgun óverðtryggða lánsins er enn þá 283.000. Á þessum 15 árum er höfuðstóll verðtryggða lánsins kominn upp í 77,4 milljónir á meðan höfuðstóll óverðtryggða lánsins hefur lækkað um milljón á ári í 25 milljónir. Munurinn er þrefaldur.“
Ásthildur segir að eftir 20 ár hafi óverðtryggða lánið lækkað enn og komið í 14,3 milljónir þegar verðtryggða lánið stendur í 65,6 milljónum króna.
„Þegar þarna er komið eru einungis fimm ár eftir af lánstímanum þannig að lántakandinn þarf að greiða niður 65 milljón króna höfuðstól á aðeins fimm árum, enda hækka afborganir upp frá því sífellt þannig að síðustu þrjú ár lánstímans fara mánaðarlegar afborganir frá 1,5 milljónum upp í í 1,9 milljónir í síðustu afborgun. Síðasta afborgun óverðtryggða lánsins er aftur á móti 283.000 eins og allar hinar 299.“
Þegar allt kemur til alls segir Ásthildur Lóa að óverðtryggði lántakandinn hafi greitt 85 milljónir króna en sá með verðtryggða lánið 215 milljónir króna.
„Þetta eru lánin sem þeim, sem „ekki standast greiðslumat“ fyrir óverðtryggðum lánum, er boðið upp á. Þetta eru lánin sem ekki má afnema þrátt fyrir harða baráttu Flokks fólksins, Hagsmunasamtaka heimilanna og fremstu verkalýðsforingja landsins. Þetta eru lánin sem allar ríkisstjórnir undanfarinn áratug hafa varið með kjafti og klóm. Þetta er ekkert annað en opinber glæpastarfsemi.“