Frétt Hringbrautar í gær um neyð Ásthildar Eddu Ágústsdóttur sem varð fyrir því óláni að glata aleigunni sinni við verslun Nettó í Mjódd í fyrrakvöld vakti talsverða athygli.
Sjá einnig: Ásthildur glataði aleigunni í Nettó: „Kannski langsótt – en ég vona það besta“
Ásthildur var með búnt af peningum í vasanum, samtals um 40 þúsund krónur, þegar hún gekk að verslun Nettó til að kaupa inn. Þegar hún kom að kassanum voru peningarnir ekki lengur þar og virtust þeir hafa dottið úr vasa hennar. Þetta var um átta leytið á mánudagskvöld og mjög óheppilegt, enda allt að því aleiga Ásthildar.
Ásthildur sagði frá þessu á Facebook í þeirri von að hugsanlega myndi einhver góðhjartaður þarna úti hafa samband og skila peningunum. Og það er nákvæmlega það sem gerðist.
„Góðar fréttir - Einhver heiðarlegur skilaði inn peningunum til lögreglunnar. Afskaplega er ég þakklát - Takk kærlega fyrir,“ sagði Ásthildur í skilaboðum til blaðamanns í hádeginu. Svo virðist vera sem peningarnir hafi dottið úr vasa hennar á bílastæðinu við verslunina því þeir fundust þar. Aðspurð hvort hún vilji koma einhverju áleiðis til viðkomandi, segir Ásthildur: „Já, ómældu þakklæti og kærleika.“