Ásthildur Edda Ágústsdóttir varð fyrir því óláni í gærkvöldi að glata 40 þúsund krónum í seðlum, eða hér um bil aleigunni sinni. Ásthildur greindi frá þessu í Facebook-hópi Breiðholtsbúa og veitti hún Hringbraut góðfúslegt leyfi til að fjalla um málið.
Ásthildur segist hafa verið í Nettó í Mjóddinni í Breiðholti um klukkan 20 í gærkvöldi með búnt af peningum í vasanum. Einhvers staðar í búðinni eða á leiðinni inn í hana virðast seðlarnir hafa dottið úr vasanum því þegar hún kom á kassann voru seðlarnir horfnir.
„Þetta var aleigan mín (um 40 þúsund),“ segir Ásthildur sem vill láta reyna á mátt Facebook og biðla til þess sem mögulega fann peningana að skila þeim.
„Kannski langsótt - en ég vona alltaf það besta,“ segir hún. Hún segist hafa haft samband við verslun Nettó í Mjódd og fengið þau skilaboð að farið yrði yfir eftirlitsmyndavélar verslunarinnar með það að markmiði að varpa ljósi á hvar peningarnir glötuðust. Þá hafi forsvarsmenn Nettó verið svo hjálplegir að bjóða henni 40 þúsund króna inneign í Samkaupsappinu.
Ásthildur segist þakklát fyrir það þó að hún geti vissulega ekki notað inneignina í apótek eins og hún hefði þurft á að halda. „En afskaplega er ég glöð að eiga í matinn og gæludýramat,“ segir hún og biðlar til þeirra sem hafa upplýsingar um hvar peningarnir eru að hafa samband.