„Það kæmi sér gríðarlega vel fyrir okkur hjónin að fá þessar 12 milljónir til baka,“ segir Ásthildur Lóa Þórsdóttir í pistli á vef Vísis. Ásthildur er formaður Hagsmunasamtaka heimilanna en hún segist hafa verið féflett illilega af Arion banka.
Tilefni pistilsins er frétt Markaðarins í dag þess efnis að Arion banki sé hreinlega í vandræðum með eigið fé sitt vegna þess hversu mikið það er. Í fréttinni kemur fram að bankinn sé með um 65 milljarða króna í umfram eigið fé og ætti að geta greitt hluthöfum rúmlega 40 milljarða í arð.
Ásthildur stingur upp á því að hann geri upp við hana og fleiri til fyrst.
Óbilgirni og harka
„Ég ætla að stinga upp á því við bankann að hann greiði hluthöfum sínum ekki neitt af þessum 65 milljörðum enda „ekki skynsamleg ráðstöfun“, heldur sýni bankastjóri Arion banka þann manndóm og sanngirni að sjá til þess að þeir 40 milljarðar sem hann getur greitt út, fari til fólksins sem bankinn hefur féflett, af einstakri óbilgirni og hörku, síðustu árin,“ segir Ásthildur í pistli sínum og bætir við að þeir skipti þúsundum.
„Arion banki stal af mér a.m.k. 12 – 30 milljónum, ef ekki meiru, og ég myndi gjarnan vilja fá eitthvað af því til baka. Upphæðin fer eftir því við hvað er miðað, en hún er klárlega nær 30 milljónum en 12. Ég er þó til í að miða kröfu mína við þær algjörlega óumdeilanlegu 12 milljónir sem um ræðir, til að flækja málin ekki frekar.“
Hún segir að vandræði bankans með að losna við eigið fé komi henni á óvart. Segir hún að óbilgirni bankans á þeim tíma þegar hún var að eiga við hann benti til þess að hann héngi á horriminni. Hún fer ekki efnislega í saumana á deilum sínum við bankann en segir að hann hafi neytt aflsmunar með óforskömmuðum hætti. Ásthildur hefur áður tjáð sig um að hafa tekið ólögmætt gengistryggt lán á sínum tíma eins og þúsundir Íslendinga.
Tókst að bjarga heimili sínu
Ásthildur segir að einhverjir kunni að velta fyrir sér hvers vegna hún fór ekki með málið fyrir dómstóla.
„Það er eðlileg spurning en henni er að sumu leyti erfitt að svara því þar að baki liggur flókin saga um skelfileg brot íslenskra dómara og misnotkun á því gríðarlega valdi sem þeim hefur verið falið. Það er ein ástæðan fyrir því að þetta mál hefur ekki ennþá verið tekið lengra og að þegar að svarf til stáls fyrir ári síðan, vorum við hjónin komin í þá stöðu að þurfa að bjarga því sem bjargað varð. Okkur tókst að bjarga heimili okkar, en það var óheyrilega dýru og óréttlátu verði keypt.“
Hún nefnir fleiri ástæður, til dæmis þá að það getur verið dýrt að leita réttar síns og þá virðist Ásthildur ekki hafa mikla trú á íslensku dómskerfi.
„Ef íslensku dómurum er líkt við knattspyrnudómara þá eru þeir tólfti maðurinn í bankaliðinu og svo grófir að þeir dæma hreinlega víti fyrir ímynduð brot úti á miðjum velli. Staðan fyrir mótherja bankanna er því svo til vonlaus frá upphafi leiks.“
Ásthildur skorar á Benedikt Gíslason, bankastjóra Arion banka, að greiða til baka það sem bankinn hefur oftekið að hennar sögn.
„Ég fer fram á að fá þær 12 milljónir til baka sem ég sannanlega á og hvet aðra sem bankinn hefur oftekið peninga af, að fara fram á það sama.“