Á­stand í Ólafs­vík og Grundar­firði: „Held að ég geti alveg full­yrt það að þetta hafi aldrei gerst áður”

Lækna­laust er í bæði Ólafs­vík og í Grundar­firði í dag. Þetta kemur fram ífrétt Skessu­horns.

„Þetta eru alveg ein­stakar að­stæður. Ég held að ég geti alveg full­yrt það að þetta hafi aldrei gerst áður,” segir Jóhanna Fjóla Jóhannes­dóttir for­stjóri HVE í sam­tali við Skessu­horn.

Um síðustu helgi urðu for­föll á þeim læknum sem áttu að vera þessa vikuna í Ólafs­vík og í Grundar­firði. Ekki tókst að manna lækna­stöðuna í Grundar­firði og hefur verið læknis­laust þar alla vikuna. Í Ólafs­vík tókst að fá lækni til að sinna störfum þar frá síðasta sunnu­degi og fram að há­degi í gær en nú hefur verið læknis­laust þar síðan þá.

Í sam­tali við Skessu­horn segir Jóhanna Fjóla að það sé von á lækni á vakt í Ólafs­vík strax í fyrra­málið sem mun sinna þeim til­vikum sem koma upp um helgina.

Erfið­lega hefur gengið síðustu vikur og mánuði að fá lækna til að sinna læknis­þjónustu á lands­byggðinni og þeir sem koma dvelja stutt í senn og koma svo kannski aftur seinna.

Hægt er að lesa frétt Skessu­horns hér.