Landspítalinn greiddi samtals 36 milljónir króna fyrir sjö þúsund króna gjafabréf í verslunum Skechers og fyrir Omnom-súkkulaði sem fór til sex þúsund starfsmanna stofnunarinnar.
Þetta segir Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Landspítalanum, í samtali við Vísi.
Fréttablaðið fjallaði um málið á laugardag en þar kom fram að ekki væru allir starfsmenn ánægðir með gjöfina. Færsla hjúkrunarfræðinema á Twitter vakti einnig mikla athygli en neminn sagði að gjöfin væri eins og blaut tuska í andlitið eftir allt sem á undan er gengið á árinu.
Ásta segir við Vísi að gjafir spítalans til starfsfólks séu ávallt mjög hóflegar, enda yrði það mögulega litið hornauga, bæði af starfsfólki og almenningi, ef upphæðin væri há.
„Skiljanlega eru alltaf skiptar skoðanir um hvaða birgjar verða fyrir valinu hverju sinni, en valið byggist á tilboðaleit sem hefur verið unnin af sama starfsmanni Landspítala í mörg ár,“ segir hún og bætir við að hún hafi fullan skilning á óánægju sumra.
„Það er skiljanlegt að sumt starfsfólk sé ósátt við að þrátt fyrir þungt starfsár þá hafi vinnustaðurinn ekki efni á að gefa því dýrar jólagjafir.“