Ásta segir ráðningar ríkisins grunsamlegar: „Hefur einhver fengið vinnu hjá ráðuneyti eftir venjulegt umsóknarferli?“

Ásta Helgadóttir, fyrrverandi þingkona Pírata, gerir verulegar athugasemdir við ráðningarferli ríkisstofnana og þá sérstaklega ráðuneyta. Henni þykir ferlið grunsamlegt og lýsir raunum sínum og vandamanna sinna. Þetta sýnir hún fram á á Twitter.

„Hérna. Spurning. Er að aðstoða vini oft við atvinnuleit og oft eru ráðuneyti t.d. að auglýsa eftir fólki en þar virðist vera lenska að ráða innanhúss. Þ.e. manneskja ráðin tímabundið, starfið auglýst, whoops, þessi manenskja hæfust,“ segir Ásta.

Hún heldur áfram og spyr hvort einhver hafi raunverulega fengið vinnu hjá ráðuneytum án þess að hafa tengingar: „Hefur einhver fengið vinnu hjá ráðuneyti eftir venjulegt umsóknarferli? Þ.e. sérð atvinnuauglýsingu, hugsar "áhugavert", sækir um - þekkir ekki neinn í ráðuneytinu núþegar, og fengið vinnuna?“

Ásta bætir við: „Því ég er farin að hallast að því að ráðuneyti (sérstaklega) og aðrar ríkisstofnanir þurfi að fara að hætta að fá nöfn umsækjenda, hætta að biðja um meðmælendur á fyrstu stigum, hætta að biðja um mynd - til þess að minnka hlutdrægni. Því mér er farið að finnast þetta grunsamlegt.“

Margir Twitter notendur taka undir með Ástu.

Maggi nokkur Jensson leggur orð í belg og telur Ástu hafa nokkuð til síns máls: „Held að þinn grunur sé á góðum rökum reista. Það var auglýst eftir bílstjóra með meirapróf til að keyra ráðherrum. Ég sótti um, var hafnað og sá sem fékk starfið, komst að því að sá var fjölskyldu vinur og nýkomin með prófið og talin hæfastur. Þá var ég búinn vera með mitt rútupróf í 4 ár og með 2,5 ára reynslu,“ segir hann.

Sólveig Hauksdóttir hjúkrunarfræðingur, sú sem gerði athugasemdir við orðalag barnabóka Birgittu Haukdal þar sem hjúkrunarfræðingur var kölluð „hjúkka“, kannast við vinnubrögðin: „Þetta virðist vera ráðningarstefna Landspítalans líka.“

Þá segir Eva Pandora, einnig fyrrum þingkona Pírata, segir þó að til séu dæmi um að ótengdar og óháðar manneskjur fái vinnur innan ráðuneyta: „Já! Systir mín í fjármálaráðuneytið. Já og besta vinkona mín í Atvinnuvega- og nýsköpunar! Þær voru m.a.s. saman á Stjórnarráðs happy hour um daginn.“