Ásta sár og svekkt: Óprúttinn aðili notaði ÓB-lykilinn – Situr sjálf uppi með tjónið

Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum við bílaleiguna Hertz. Ásta opnar sig um þessa miður skemmtilegu reynslu á Twitter.

„Vá hvað ég er pirruð. Ég var með bíl á langtímaleigu hjá Hertz í fyrravetur og því fylgdi svona ÓB afsláttarlykill á sérkjörum. Ég skila bílnum í maí, þau taka hamingjusamlega við lyklum, líka ÓB lyklinum. En núna er ég búin að fá færslur upp á 20k - einhver að nota ÓB lykilinn sem er skráður á mitt kort,“ segir Ásta Guðrún og heldur áfram:

„Þau afhentu basically einhverjum kreditkortið mitt. Því ég átti af einhverjum ástæðum að vita að þessi lykill væri mín séreign, þó ég hafi tengt hann við leiguna og þau tekið við honum hamingjusamlega við skil bílsins,“ segir hún en tekur fram að ÓB hafi verið mjög hjálplegt og lokað lyklinum.

„En Hertz er bara "úps", ekkert sem við getum gert. Þér að kenna. Ætla ekki einu sinni að reyna að laga þetta með því að tala t.d. við túristana sem eru með bílinn á leigu til að leiðrétta þetta,“ segir hún. Hún veltir fyrir sér hvernig hún átti að vita að þessi lykill – sem átti að vera með sérafsláttarkjör út af langtímaleigu – myndi einu sinni virka að leigutíma loknum.

„Og að þau hafi bara tekið við honum án þess að blikka og bara látið einhvern annan fá hann aftur?“

Ásta segir að næstu skref fyrir hana séu að tala við bankann og lögguna. Hún viðurkennir að hún nennir tæplega að standa í svona veseni og lái henni hver sem vill.

„Ég er bara argh. Ekki láta bílaleiguna um að tengja þessa lykla fyrir þig, þeim er greinilega ekki treystandi við að veita réttar upplýsingar.“