Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að framlagning frumvarps um heiðurslaun listamanna sé fyrst og fremst tækifæri fyrir hann til að ræða stuðning ríkisins við listamenn.
Ásmundur og tveir samflokksmenn hans, þeir Arnar Þór Jónsson og Vilhjálmur Árnason, hafa lagt fram frumvarp um að leggja niður heiðurslaun listamanna á Íslandi. Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi sagði Vilhjálmur að þessi tími væri liðinn.
„Að þetta sé ógagnsætt kerfi. Þannig við viljum heiðra listamenn en við teljum að þessi takmörkuðu heiðurslaun séu ekki rétta aðferðin til þess,“ sagði hann.
Eins og gefur að skilja eru skiptar skoðanir um frumvarpið og margir sem eru andvígir því að það nái fram að ganga. Ásmundur sagði í færslu á Facebook-síðu sinni í morgun að það væri margt sem betur mætti fara.
„Hvað með stuðning við unga listamenn? Er það einhver glóra að styrkja listamenn á hátindi feil síns meðan þeir skapa sér laun sem duga ríflega fyrir framfærslu.
Til hvers eru listamannalaun,“ spurði Ásmundur og hélt svo áfram:
„Ræðum það í samhenginu virðingar og þakklætisvott til okkar fremstu og virtustu listamanna. Hvað með unga listafólkið sem vantar stuðning til að koma sér á framfæri?
Þar er ég staddur í þessari umræðu sem aldrei má fara fram.“