Ásmundur þakklátur á Landspítalanum: „Ég á heilbrigðiskerfinu mikið að þakka“

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kveðst eiga íslensku heilbrigðiskerfi mikið að þakka.

Ásmundur birti færslu á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann greindi frá því að hann hefði verið á ferð í heilbrigðiskerfinu í vikunni. Mætti hann á Landspítalann í Fossvogi klukkan 7 á mánudagsmorgun til að gangast undir sín fjórðu og vonandi síðustu liðskipti á hné.

„Eftir tug speglana og aðgerða til að laga á mér hnén fékk ég hálfan lið í vinstra hné árið 1999 og í það hægra 2004. Því var spáð að hálfur liður myndi duga í 12 ár. Þeir dugðu í 20 ár hvor þrátt fyrir yfirþyngd og miklar göngur til að halda mér í formi.“

Ásmundur slær á létta strengi í pistli sínum og segist í áratugi hafa verið FF, sem er skammstöfun á feitur í formi. Nú segist hann bara vera í formi, enda 32 kílóum léttari en við síðustu liðskipti árið 2021.

„Ég er þakklátur heilbrigðisstarfsfólki fyrir lipurð og frábæra þjónustu í gegnum 15 minni og stærri speglanir og aðgerðir á hnjánum mínum síðan 1978. Viðmótið sem ég fékk í morgun er það sama og í fyrstu speglunum fyrir 35 árum. Starfsfólkið og aðhlynning þess við sjúklingana hefur ekkert breyst. Þrátt fyrir aukið álag, veirufaraldur og annað sem þjakar heilbrigðiskerfið. Sumt óviðráðanlegt annað á ábyrgð yfirvalda. Ég á heilbrigðiskerfinu mikið að þakka og mun áfram bera ábyrgð sem best ég get á eigin heilsu.“