„Ég hef alltaf sagt það að fólk sem kemur hingað sem hælisleitendur en hefur þegar fengið vernd í öðrum löndum Evrópu og Evrópusambandsins þá er ekki um hælisleitendur að ræða,“ segir Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Ásmundur hefur farið mikinn í umræðunni um flóttamenn að undanförnu og hefur hann meðal annars viðrað áhyggjur sínar af miklum kostnaði sem fylgir því að taka á móti þeim. Hefur Ásmundur legið undir nokkuð harðri gagnrýni vegna málsins.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í fréttum RÚV á laugardag að hann væri sammála áhyggjum Ásmundar um kostnað vegna hælisleitenda. Sagði Bjarni þó að Íslendingum beri þó að hjálpa fólki á flótta undan skelfilegum aðstæðum.
Ásmundur hefur sagt fyrstur manna frá því þegar hópar hælisleitenda koma til landsins. Þannig sagði hann á Facebook-síðu sinni þann 25. september síðastliðinn að sautján hælisleitendur hefðu nýverið komið til landsins. Í færslunni sagði hann: „Eigum við ekki nóg með okkur sjálf núna.“
Bjarni segist telja að í þeim orðum hafi Ásmundur viljað benda á að á sama tíma og treglega gengur að afgreiða beiðnir um alþjóðlega vernd falli til mikill kostnaður. Það sé slæmt enda ríkissjóður rekinn með gríðarlegum halla.
Ásmundur segir í færslu á Facebook-síðu sinni í morgun að það sé samkomulag um að taka á móti flóttamönnum og fólki í neyð. Enginn ágreiningur sé um það. „Útúrsnúningar og persónulegar árásir á mig er flótti frá umræðunni,“ segir hann enn fremur.
Ég hef alltaf sagt það að fólk sem kemur hingað sem hælisleitendur en hefur þegar fengið vernd í öðrum löndum Evrópu og...
Posted by Ásmundur Friðriksson on Mánudagur, 19. október 2020