Ás­mundur sendi póst á Ás­laugu Örnu vegna máls senegölsku fjöl­skyldunnar

Ás­mundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, segist hafa sent póst á Ás­laugu Örnu Sigur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra vegna máls senegölsku fjöl­skyldunnar sem hefur beðið eftir al­þjóð­legri vernd hér á landi í sex ár.

Ás­mundur hefur verið tölu­vert í um­ræðunni vegna mál­efna flótta­manna að undan­förnu, enda hefur hann viðrað á­hyggjur sínar af miklum kostnaði sem fylgir því að taka á móti þeim. Ás­­mundur hefur sagt fyrstur manna frá því þegar hópar hælis­­leit­enda koma til landsins.

Þannig sagði hann á Face­book-síðu sinni þann 25. septem­ber síðast­liðinn að sau­tján hælis­­leit­endur hefðu ný­verið komið til landsins. Í færslunni sagði hann: „Eigum við ekki nóg með okkur sjálf núna.“

Mörg þúsund Ís­lendingar hafa skrifað undir á­skorun þess efnis að fjöl­skyldunni, hjónunum Bassirou Ndia­ye og Mahe Diouf og tveimur dætrum þeirra, verði leyft að vera hér á­fram en til stendur að vísa henni úr landi. Dætur þeirra tvær fæddust báðar hér á landi og eru hér í leik- og grunn­skóla.

Ás­mundur er þeirrar skoðunar að leita þurfi allra leiða til að leyfa fjöl­skyldunni að vera hér á­fram.

Ás­mundur birti af­rit af skila­boðum sínum til Ás­laugar Örnu eftir kvöld­fréttir Sjón­varps þann 30. októ­ber síðast­liðinn þar sem fjallað var um mál­efni fjöl­skyldunnar.

„Ás­laug Arna, veistu eitt­hvað um mál þessarar fjöl­skyldu sem hefur sam­kvæmt fréttum kvöldsins reynt í 6 ár að fá hæli hér á landi og eignast hér tvær stúlkur. Það getur ekki verið eðli­legur tími eða hvað er með þetta mál?

Ef ríkið á hér sök þá gengur ekki að senda slíkt fólk úr landi finnst mér.“

Ás­mundur kveðst í færslu sem hann skrifaði á Face­book í gær­kvöldi vera á­nægður með við­brögð Ás­laugar Örnu um að máls­með­ferð um­sækj­enda um al­þjóða vernd fái úr­lausn sinna mála á sem skemmstum tíma.

„Að mínu mati er það ský­laust mann­réttinda­brot að máls­með­ferð taki á sjöunda ár. Það er því ein­boðið að þessi fjöl­skylda fái al­þjóð­lega vernd hér á landi en mál hennar verður endur­upp­tekið. Ég hef marg­oft áður lýst þessari skoðun minni og vil því í­treka hana hér,“ segir hann í færslu sinni.

Elín Árna­dóttir, lög­maður fjöl­skyldunnar, sagði í frétt Vísis í gær að ekki væri komin dag­setning á það hve­nær fjöl­skyldunni verður vísað úr landi. „Það liggur fyrir hjá kæru­nefnd út­lendinga­mála. Þar er beiðni um endur­upp­töku. Það er á brattann að sækja í svona málum eins og sjá má.“

Þennan póst sendi ég Áslaugu Örnu á sérstökum þræði okkar þingmanna Sjálfstæðisflokksins eftir kvöldfréttir í...

Posted by Ásmundur Friðriksson on Þriðjudagur, 3. nóvember 2020