Ásmundur ósáttur: Þjarmað að fólki á sorgarstundum – Svandís fékk ekki að syrgja

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði athugasemdir við það hvernig framkomu þingmenn og ráðherrar hafa mátt þola þegar andlát á sér stað í fjölskyldum þeirra.

Þetta sagði Ásmundur í ræðu sinni um störf þingsins á Alþingi í dag.

Þar tók Ásmundur undir með Þorsteini Sæmundssyni, þingmanni Miðflokksins, sem hefur gert athugasemdir við klæðaburð þingmanna í þingsal, þá einna helst Björns Leví Gunnarssonar, þingmanns Pírata. Sagði Ásmundur sorglegt að sjá hvernig þingmenn komast upp með að sýna Alþingi vanvirðingu með óviðeigandi klæðaburði.

„Virðulegur forseti. Ég vil líka gera athugasemd við það hvernig framkomu þingmenn og ráðherrar hafa mátt þola þegar andlát á sér stað í fjölskyldum þeirra. Nýlega missti hæstvirtur heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, föður sinn. Ráðherra og fjölskylda hennar fengu ekki svigrúm til að syrgja látinn föður og afa Ráðist var á embættisfærslur ráðherrans í fjölmiðlum og hér í þingsal þegar hún hefði átt að fá frið til að syrgja með fjölskyldu sinni,“ sagði Ásmundur í ræðu sinni.

Hann benti á að það sama hefði gerst þegar Sigríður Á. Andersen var dómsmálaráðherra og varð fyrir sárum móðurmissi.

„Fyrir réttum tveimur árum birti Mannréttindadómstóll Evrópu dóm í svokölluðu Landsdómsmáli. Það var nokkrum þingmönnum tilefni til að gagnrýna þáverandi hæstvirtan dómsmálaráðherra mjög harkalega strax og fréttin flaug um ljósvakana sem létu sitt ekki eftir liggja. Sama dag lést móðir ráðherrans í faðmi fjölskyldunnar og mátti þola harða gagnrýni þingmanna og fjölmiðla allan daginn og engin grið gefin,“ sagði Ásmundur sem endaði ræðuna á þessum orðum:

„Það er of langt gengið, virðulegi forseti, þegar svona er þjarmað að ráðherrum og þingmönnum af samþingsmönnum og fjölmiðlafólki á sorgarstundum. Traust fyrir störfum okkar sem hér sitjum í krafti kjósenda verður aldrei meira en sú virðing sem við sýnum hvert öðru og Alþingi sem æðstu stofnun landsins.“