Ásmundur ósáttur og birtir myndir: Er þetta viðunandi aðstaða á flugvellinum?

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að stjórnvöld séu með allt niðrum sig þegar kemur að aðstöðu fyrir farþega á Reykjavíkurflugvelli.

„Farþegar til Grænlands bíða í biðsal millilandaflugs á Reykjavíkurflugvelli. Bilun varð í vélinni og henni snúið við og lent aftur á Reykjavíkurflugvelli með ca 60 farþega. Það er ekki frásögu færandi en fyrir 6 - 7 árum sat ég hér í þessum sal á leiðinni með flugi til Færeyja. Þá eins og nú voru ekki sæti fyrir alla farþegana í biðsalnum. Hér eru sömu 30 sætin og eitt WC og aðstaðan lagast ekki,“ segir Ásmundur í færslu á Facebook og birtir myndir máli sínu til stuðnings.

„Ruglið í kringum Reykjavíkurflugvöll er algjört og hér gerum við ráðamenn ekkert fyrir innan- og millilandaflug frá höfuðborginni. Og nýr borgarstjórnarmeirihluti talar enn um að flytja flugvöllinn í Hvassahraun. Þeir hafa greinilega misst af fréttaannál ársins 2021 en þar var sagt frá eldgosi og þúsundum jarðskjálfta við fyrirhugað flugvallarstæði í Hvassahrauni.“

Ásmundur segir að á sama tíma séum við með allt á hælunum þegar kemur að aðstöðu fyrir farþega og starfsemi innanlandsflugsins.

„Ég veit að samgönguráðherra vill vel. Hér er verkefni sem við getum lagst á saman og klárað.“