Ás­mundur: Hraðinn til glötunar mun aukast

„Hvaða skila­boð eru það út í sam­fé­lagið að börn megi fara að bera eitur­lyfja­skammta hér í skólum landsins,“ sagði Ás­mundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, í um­ræðum á Al­þingi í dag um bætt upp­eldi, leið til for­varna og lýð­heilsu.

Ás­mundur þakkaði fyrir um­ræðuna en máls­hefjandi var Una María Óskars­dóttir, vara­þing­maður Mið­flokksins.

Ás­mundur sagði mikil­vægt að taka þessa hluti al­var­lega og spurði hvernig þing­menn væru að stuðla að bættri lýð­heilsu í landinu. Nýtti hann ræðu sína til að hnýta meðal annars í Pírata.

„Hér eru í þinginu nokkrar til­lögur um aukið að­gengi að eitur­lyfjum með neyslu­rýmum sem eru með ó­tak­markað að­gengi. Ef allir fá að­gengi að því þá mun hraði nýrra neyt­enda til glötunar aukast. Hér er frum­varp sem Píratar hafa lagt fram um af­glæpa­væðingu eitur­lyfja­skammta. Þar eru til dæmis engin aldurs­tak­mörk á því hverjir mega bera eitur­lyfja­skammta,“ sagði hann og bætti við að börn í grunn­skólum gætu þess vegna verið með neyslu­skammta á sér án þess að það væri ó­lög­legt.

Það er þó fleira en af­glæpa­væðing neyslu­skammta sem Ás­mundur hefur á­hyggjur af, til dæmis aukið að­gengi að á­fengi.

„Við erum að tala um að vera með aug­lýsingar á á­fengi og heims­endingar­þjónustu á á­fengi. En það hefur enginn í þessum sal komið með neina til­lögu um það að til þess að mæta þessu á­standi, sem mun skapast þegar þessi lög verða sam­þykkt, að hér þurfi að auka úr­ræði til með­ferðar.“

Ás­mundur benti á að nú þegar væru fleiri hundruð manns á bið­listum eftir með­ferð.

„Hvað haldið þið þegar af­glæpa­væðingin og neyslu­rýmin verða hér á öðru hverju götu­horni. Hvernig verður staðan þá?
Það er enginn að koma með til­lögu um það að lýð­heilsa fólks verði tryggð með að fá með­ferð. Hvernig verður geð­heil­brigðis­málum á Land­spítalanum háttað þegar þessi alda ríður yfir?
Ég segi: Við þurfum að mæta þeim lögum og á­hrifum sem við ætlum að hafa í sam­fé­laginu með því að koma á með­ferðar­úr­ræðum fyrir þá sem falla í gryfjuna.“