Ásmundur hélt konukvöld í kvöld

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, býr sig nú undir prófkjör flokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer á laugardag.

Ásmundur hefur setið á þingi frá árinu 2013 og sækist eftir því að sitja áfram að minnsta kosti eitt kjörtímabil í viðbót. Stefnir hann á 2. sætið á lista flokksins.

Ásmundi virðist sérstaklega umhugað um að ná til kvenna ef marka má viðburð sem haldinn var í K-húsinu við Hringbraut í Reykjanesbæ í kvöld. Þar var haldið „Konukvöld Ása Friðriks“ sem virðist hafa verið skipulagt af dóttur Ásmundar, ef marka má Facebook-síðu viðburðarins.

Að minnsta kosti 30 konur höfðu boðað komu sína á viðburðinn og virðist stemningin hafa verið nokkuð góð.

Ásmundur hefur haft ýmis mál á stefnuskrá sinni sem þingmaður og þykir trúr sinni sannfæringu. Í framboðspistli sem birtist á vef Víkurfrétta á dögunum var honum tíðrætt um mikilvægi þess að skapa ný atvinnutækifæri til að grynnka á atvinnuleysi á Suðurnesjum.

„Því miður eru þingmenn sem ekkert annað leggja til málanna en að fjölga opinberum störfum og lengja bótatímabilin eins og Samfylkingin hefur haft að leiðarljósi,“ sagði Ásmundur meðal annars.

Ljóst er að spennandi prófkjör er framundan hjá Sjálfstæðisflokknum, en alls bárust níu framboð og er kosið um 5 efstu sætin. Vilhjálmur Árnason, sitjandi þingmaður, gefur kost á sér í fyrsta sætið og þá gefur Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjörís, einnig kost á sér í fyrsta sætið.