Ásmundur gríðarlega ósáttur við fyrsta þátt Verbúðarinnar

„Það er ekki oft sem ég sest við sjónvarpið. Gerði það þó í kvöld og horfði á Verbúðina á Ríkisútvarpinu. Ég verð að segja eins og er að ég er orðinn leiður á þessum landsbyggðarrasisma höfuðborgarbúa og Ríkisútvarpsins.“

Þetta segir Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um Verbúðina, nýja íslenska þáttaröð sem frumsýnd var á RÚV í gærkvöldi.

Þættirnir sem um ræðir eru úr smiðju Vesturports og gerast þeir á níunda áratugnum. Segja þeir frá vinahóp sem kemst yfir óhaffæran togara og byggir upp mikið viðskiptaveldi á sama tíma og íslensk stjórnvöld innleiða kvótakerfið. Þess má geta að þættirnir hlutu mjög fínar viðtökur á samfélagsmiðlum í gærkvöldi. Þá eru nokkrir þeirra sem skrifa athugasemdir við færslu Ásmundar honum hjartanlega ósammála.

„Í þessu framlagi ríkisútvarpsins til menningarinnar í landinu er dregin upp sú mynd af fólki í sjávarplássi að þar sé meira og minna um undirmálsfólk. Topp skipstjórar séu drykkjusjúklingar sem láti troða amfetamíni í óæðri endann á sér. Samfarir þar sem ekkert er dregið undan en ljótleikinn í aðalhlutverki. Þá er fiskvinnslufólkið ekki látið líta vel út eins ég upplifði það,“ segir Ásmundur og heldur áfram:

„Þá eru konur lítillækkaðar með fáránlegu stripli sem engan tilgang hefur. Er þetta er menningarframlag Ríkisútvarpsins til Me too hreyfingarinnar. Er ekki komin tími til að landbyggðarrasisma menningarvitanna og Ríkisútvarpsins linni. Baráttumálum Ríkisútvarpsins og samstarfsaðilum þess má koma á framfæri á annan hátt en gera lítið úr fólki sem vinnur mikilvæg gjaldeyrisskapand störf á landsbyggðinni og í sjávarplássum allt í kringum landið.“

Eins og að framan greinir hafa þættirnir fengið fína dóma á samfélagsmiðlum. Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason hrósaði þeim til dæmis í hástert. Hann sagði á Facebook:

„Langar bara að þakka fyrir að fá loks þætti sem segja eitthvað um samfélagið okkar, sem hafa stærri víddir en hin almenna glæparannsókn. Smá sárt samt að sjá hvað tíminn sem ól mann var nöturlegur, grófur og almennt séð klikkaður. Þar munar mest um áfengismenninguna sem var auðvitað hræðileg. Maður horfir þarna á nýfrjálsa þjóð sem kann ekkert á hlutina sem hún hefur fengið í fangið og bregst við með því að vinna sig í svefn og drekka sig í bólið með bara einhverjum/einhverri. Minnir á hvað aukið frjálsræði í bjór- og vínsölu hafði mikil og bætandi áhrif á þetta kalda mannfélag. Og síðan gleðigöngurnar allar, kvenfrelsisbaráttan og metoo... Maður fór semsagt að hugsa þetta allt, takk Vesturport. Og svo tókst ykkur meira að segja að gera lag með Pétri Kristjáns sæmilega töff. Bíð spenntur eftir framhaldinu og hvernig þið farið með kvótaævintýrið.“