Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins fagnaði því fyrir skömmu að sextán ár eru liðin frá því að hann tók þá ákvörðun að hætta neyta áfengis. Frá þessu greinir Ásmundur á facebook síðu sinni. Þar þakkar hann Guði fyrir að hafa tekið frá sé löngun í vín og frelsinu sem því fylgir að vera án áfengis. Hann hafi fyrir vikið uppskorið traust og ábyrgð í sínu lífi. Þá segir hann að hann reyni hann að vinna í þágu samfélagsins til þess að þakka fyrir gæfu sína í þessum efnum.
Ásmundur virðist, af færslunni að dæma, fagna áfanganum með því að stilla sér fyrir framan hlóðirnar í glæsilegri svuntu með kaffibolla og lítur út fyrir að vera í þann veginn að matreiða dýrindis veitingar.