Ás­mundur Frið­riks ánægður með Vig­dísi fyrir að standa á sínu: „Þú ert hetja“

Ás­mundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, sagði Vig­­dísi Häsler fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­taka Ís­lands vera hetju í at­huga­semd undir færslu hennar um meiðandi um­mæli Sigurðar Inga.

Í færslunni segir Vig­dís að Sigurður Ingi hafi látið niðrandi orð falla um hana í boði Fram­­sóknar­­flokksins í að­­draganda Búnaðar­þings um helgina.

Þegar stóð til að taka mynd þar sem þing­­menn áttu að bera Vig­­dísi í planka er Sigurður sagður hafa sagst ekki vilja taka þátt í þessu „með þessari svörtu“. Að­­stoðar­­maður Sigurðar Inga þver­tók fyrir að hann hafi notað þessi orð en Vig­­dís segist vita hvað var sagt.

„Það er særandi þegar reynt er að gera lítið úr upp­­­lifun minni og þegar bein­línis rangar skýringar eru notaðar við það. Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera á­byrgð á þeim orðum sem ráð­herrann við­hafði í minn garð. Duldir for­­­dómar eru gríðar­­­legt sam­­­fé­lags­­­mein og grassera á öllum stigum sam­­­fé­lagsins. Þeir smætta verk ein­stak­linga og gjörðir niður í lit eða kyn,“ sagði Vig­­dís meðal annars.

„Þú ert hetja,“ bætti þá Ás­­mundur Frið­riks­­son, þing­­maður Sjálf­­stæðis­­flokksins við færslu hennar. Þá sendi Diljá Mist Einars­dóttir, þing­­kona Sjálf­­stæðis­­flokksins, henni hjörtu.

„Það skiptir máli að öflug kona eins og þú svo sannar­­lega ert lúffir ekki fyrir gas­­lýsingu eins og þeirri sem borið hefur á. Það er mjög mikil­­vægt og hafðu þakkir fyrir,“ sagði Helga Vala Helga­dóttir, þing­­kona Sam­­fylkingarinnar.

Guð­­finnur Sigur­vins­­son, stjórn­­sýslu­­fræðingur og að­­stoðar­­maður þing­­flokks Sjálf­­stæðis­­flokksins, segir Vig­­dísi eiga miklu betra skilið en þetta „yfir­­klór“ og „lyga­þvælu“. Guð­­finnur og Vig­­dís þekkjast vel enda störfuðu þau sam­­tímis fyrir þing­­flokk Sjálf­­stæðis­­flokksins áður en Vig­­dís tók við sem fram­­kvæmda­­stjóri Bænda­­sam­takanna.

Sigurður Ingi hefur nú beðist afsökunar á ummælum sínum en afsökunarbeiðni Sigurðar má sjá hér að neðan.