Ás­mundur fær kjána­hroll: „Mesta vind­högg sem þjóðin hef­ur orðið vitni að“

„Að ætla sér að sökkva starf­­semi Land­­spít­al­ans í fóst­ur­eyðing­ar fyr­ir þúsund­ir kvenna frá Pól­landi og Möltu og helst fleiri lönd­um svo nóg verði að gert að mati Sam­­fylk­ing­ar­inn­ar er flótti frá raun­veru­­leik­an­um og flest­ir fá kjána­hroll af til­­hugs­un­inni,“ segir Ás­mundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, í að­sendri grein í Morgun­blaðinu í dag.

Ás­mundur skrifar þar um um­deilda þings­á­lyktunar­til­lögu sem snýr að að­gengi ein­stak­linga sem ferðast til Ís­lands að þungunar­rofi. Á­tján þing­menn, þar á meðal þing­menn Sam­fylkingar, Við­reisnar og Pírata, standa að baki til­lögunni sem myndi tryggja að ein­staklingar sem ferðast hingað til lands í því skyni að gangast undir þungunar­rof fái við­eig­andi heil­brigðis­þjónustu.

Ás­mundur hefur gagn­rýnt til­löguna og í grein sinni í Morgun­blaðinu dregur hann ekki í land. „Lík­­lega er leit­un að meira takt­­leysi,“ segir hann.

Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, þing­maður utan flokka, er fyrsti flutnings­maður til­lögunnar og fær hún kaldar kveðjur frá Ás­mundi.

„Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir gat valið sér eitt for­­gangs­­mál til að leggja fram í þing­inu sem þing­maður utan flokka og er fram­lag henn­ar lík­­lega mesta vind­högg sem þjóðin hef­ur orðið vitni að á þess­um for­­dæma­lausu tím­um. Í þeirri ógn­ar­­stöðu sem þjóðin, heim­il­in, at­vinnu­lífið og heil­brigðis­­kerfið er í mætti ætla að for­­gangs­­mál þing­­manns­ins stæði til að leggja heim­il­um lið og at­vinnu­lausu fólki, en annað kom á dag­inn. Þing­maður­inn Rósa Björk á­kvað að leita út fyr­ir land­­stein­ana að verk­efni til að styðja. Í hópi flutn­ings­manna til­­lög­unn­ar eru m.a. for­­menn tveggja stjórn­­mála­­flokka, Sam­­fylk­ing­ar og Við­reisn­ar sem eru greini­­lega í hópi flótta­manna frá þeim raun­veru­­leika sem blas­ir við á Ís­landi,“ segir hann.

Ás­mundur bendir á í grein sinni að í Pól­landi til dæmis gildi strangar reglur kaþólsks sam­fé­lags um fóstur­eyðingar. Segir hann að Rósa vilji beita ís­lenska heil­brigðis­kerfinu í póli­tísku á­grein­ings­­máli í Pól­landi og í raun víðar eins og frem kem­ur í til­­lög­unni.

„Renada Kim, blaða­kona Newswe­ek í Pól­landi, sagði frá því í þætt­in­um Heims­kviðum á Rík­is­út­­varp­inu að allt að 150 þúsund ó­lög­­leg­ar fóst­ur­eyðing­ar færu fram í Pól­landi á ári hverju og mann­rétt­inda­­sam­tök sem ekki voru nafn­­greind segðu fjöld­ann vera á bil­inu 100-200 þúsund. Það er því hætt við að til­­lag­an hefði í för með sér tölu­verða breyt­ingu á kven­­lækn­inga­­deild Land­­spít­al­ans sem hef­ur fram­­kvæmt um 1.000 fóst­ur­eyðing­ar á ári fram að þessu,“ segir Ás­mundur og bætir við að honum sé ekki kunnugt um að þeir 18 þing­­menn sem að til­lögunni standa hafi rætt hug­­mynd­ina við for­svars­­menn spít­al­ans.

Í grein sinni rifjar Ás­mundur upp ný lög um fóstur­eyðingar á Ís­landi sem voru um­deilt á þinginu eins og í sam­fé­laginu öllu. Hann segir að þessi til­laga fjalli ekki um þá lög­gjöf og allt tal í þá veru sé til þess fallið að af­vega­leiða um­ræðuna.

„Þing­maður­inn Rósa Björk fékk leyfi til að mæla fyr­ir einni for­­gangs­til­lögu á Al­þingi sem þing­maður utan flokka. Í heims­far­aldri vegna Co­vid-19, hruni á þjóðar­­tekj­um, með þúsund­ir heim­ila í ó­vissu og at­vinnu­­leysi allt að 25% þar sem það er mest og heil­brigðis­­kerfið á neyðar­á­ætl­un legg­ur þing­maður­inn fram þessa þings­á­lykt­un á­samt öll­um þing­­mönn­um Sam­­fylk­ing­ar­inn­ar, Við­reisn­ar og Pírata. Að ætla sér að sökkva starf­­semi Land­­spít­al­ans í fóst­ur­eyðing­ar fyr­ir þúsund­ir kvenna frá Pól­landi og Möltu og helst fleiri lönd­um svo nóg verði að gert að mati Sam­­fylk­ing­ar­inn­ar er flótti frá raun­veru­­leik­an­um og flest­ir fá kjána­hroll af til­­hugs­un­inni.“